Helgihald í hádeginu og opin kirkja

27. mars 2021
Hádegsbænir verða í Hallgrímskirkju á pálmasunndegi kl. 12. Prestur Sigurður Árni Þórðarson. Í hádeginu mánudag til fimmtudags verða passíusálmar lesnir. Mánudag og þriðjudag les Steinunn B. Jóhannesdóttir. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir les á miðvikudegi og á skírdegi les Axel Gunnarsson. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið á undan og eftir passíuálmalestrunum. Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 11 - 15. Verið velkomin.