Hörður Áskelsson í Hallgrímskirkju og Dijon

10. júlí 2015


Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju, leikur á tvennum tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju um helgina. Hann hefur einnig þegið boð um að leika í sumartónleikaröð Dómkirkjunnar í Dijon í Frakklandi, La Cathédrale Saint- Benigne þann 19. júlí, þar sem hann leikur úr efnisskrám helgarinnar í Hallgrímskirkju.






Með tónleikum helgarinnar fagnar Hörður einnig útkomu nýs geisladisks, sem hann lék inn á á síðasta ári, en þetta eru fyrstu orgeltónleikar Harðar eftir að diskurinn kom út. Á diskinum leikur Hörður nokkur uppáhaldsverka sinna eftir J.S. Bach, Prelúdíu og fúgu í h-moll, Piéce d’Orgue, partítu og sálmforleiki, Svítu eftir Guilain og Grand Dialogue eftir Marchand. Skýringar hans með orgelverkunum eru mjög persónulegar og veita skemmtilega innsýn í hvernig Hörður heillaðist ungur af orgelinu.

Á efnisskrá laugardagsins eru heillandi og aðgengileg orgelverk sem ungir sem aldnir ættu að hafa ánægju af, m.a. umritun á Brúðkaupinu á Troldhaugen eftir Grieg og Burlesku og Maríuversi Páls Ísólfssonar, og Gotnesk svíta eftir Boëllman, sem býr yfir himneskum hægum kafla, sem margir þekkja vel undir heitinu Priere a Notre Dame eða Maríubæn. Á tónleikum sunnudagsins leikur hann aðra efnisskrá, þ.s. hann leikur m.a. Prelúdíu og fúgu í h-moll eftir J.

S. Bach og Magnificat svítu eftir Guilain af nýja diskinum, Kóral í a-moll eftir Cesar Franck og tvo þætti úr Sinfonina Archandria sem norska tónskáldið Kjell- Mörk Karlsen tileinkaði Herði.

Miðaverð er 2000 kr á laugardagstónleikana, sem hefjast kl. 12 og 2500 kr á sunnudagstónleikana, sem hefjast kl. 17 og er miðasala við innganginn.

Frítt fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.