Hátíðarhljómar við áramót - Laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. desember báðir kl. 16:30

28. desember 2017

HÁTÍÐARHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT


30. desember laugardagur kl. 16.30 (AUKATÓNLEIKAR)
31. desember Gamlársdagur 16.30 (ath breyttan tíma)


Hátíðartónlist fyrir 3 trompeta, orgel og pákur.




Trompetleikararnir Eiríkur Örn Pálsson, Einar St. Jónsson og Baldvin Oddsson, Hörður Áskelsson orgelleikari og Eggert Pálsson pákuleikari flytja glæsileg hátíðarverk m.a. eftir J.S. Bach, Albinoni, Purcell, Petz o fl. barokkmeistara.

Einir vinsælustu tónleikar ársins, þ.s. hátíðarhljómar þeirra félaga koma öllum í áramótaskapið!

Vegna gríðarlegra vinsælda er nú gerð tilraun með að bæta við tónleikum 30. des.

Aðgangseyrir: 4.500/ 4000 kr. -50% afsláttur fyrir nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.

Miðasala hefst 2 klt fyrir tónleika við innganginn og inn á midi.is.