Hvað er að gerast í guðfræðinni?

02. október 2021
Á þriðjudagsfundum í október verða fræðslufundir á vegum Hallgrímskirkju um guðfræði og trúarbragðafræði. Fundirnir verða í Suðursal Hallgrímskirkju. Athugið að þeir hefjast kl. 12,07. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson mun reyndar á fyrsta fundinum líka ganga um kirkjuskipið, benda á kirkjutáknin og ræða um þau. Prestar kirkjunnar stýra fundum. Allir velkomnir.

5. október

Sigurjón Árni Eyjólfsson: Augljóst en hulið

Kirkjur setja sterkan svip á borgir og bæi og fegurð þeirra hrífur marga. Hvernig á að skilja og túlka kirkjuhúsin og merkingu þeirra? Af hverju er skírnarfontur og prédikunarstóll nærri altarinu? Kirkjur er eins og texti sem þarf að lesa, skilja, skýra og túlka. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, fjallar um táknfræði kirkjuhúsa og gengur um Hallgrímskirkju, bendir á hin kirkjulegu tákn og túlkar þau.

12. október

Aldís Rut Gísladóttir: Orð skapa veruleika

Hvernig er hægt að tala um og við Guð? Hvað eru bænir? Hver eru mörk tungumáls og málsnið í trúartúlkun nútímasamfélags? Guðsmynd okkar, skiptir hún máli? Um þetta efni skrifaði sr. Aldís Rut meistaraprófsritgerð sína. Hún er nú prestur Langholtssafnaðar í Reykjavík.

19. október

Jón Ásgeir Sigurvinsson: Ákall þjóðar og sáðkorn vonar

Þakkarsálmur Hiskía konungs er í 38. kafla þeirrar miklu og margbrotnu Jesajabókar í fyrri hluta Biblíunnar. Dr. Jón Ásgeir segir frá þessum mikilvæga sálmi og kenningum sínum um hann. Hann skrifaði doktorsritgerð sína um sálminn. Jón Ásgeir er héraðsprestur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra.

26. október

Halldór Nikulás Lár: Íslenskt samfélag og íslam

Hvernig tökum við á móti múslimum á Íslandi? Hafa múslimar í vestrænum samfélögum einangrast vegna rangrar fjölmenningarstefnu? Halldór heldur fram að við verðum að endurskoða fjölmenningarpólitíkina til að vestræn og íslenskt samfélag einangri ekki fólk af ekki-kristnum uppruna heldur tryggja möguleika á skapandi fjölmenningu. Halldór hefur lokið mastersprófi í trúarbragðafræði og er framkvæmdastjóri Samtalssetursins.