Hvað meinti hann?

31. mars 2021
Á fræðslusamverum í Hallgrímskirkju í mars var rætt um erindi Passíusálma Hallgríms Péturssonar, uppbyggingu þeirra, tilgang, listfengi, barokk, málfar og ást. Guðríður Símonardóttir, kona skáldsins, kom líka við sögu. Þrjár hljóðskrár urðu til í þessum samverum og hafa verið birtar á kirkjuvarpi þjóðkirkjunnar. Rætt er við Steinunni B. Jóhannesdóttur, dr. Margréti Eggertsdóttur og að auki flytur Sigurður Árni Þórðarson yfirlitserindi um um ástina í Passíusálmunum. Hægt er að nálgast og hlusta á samtölin og erindi að baki þessari smellu.