Hvenær byrjar sunnudagaskólinn?

28. ágúst 2019
Hauststarfið í Hallgrímskirkju hefst í byrjun september og sunnudagaskólinn líka. Sunnudaginn 1. september verður dagskrá fyrir börnin í Suðursalnum á messutíma. Messan hefst kl. 11 og börnin byrja í messunni í kirkjunni og fara svo til sinna starfa. Rósa Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir sjá um samveruna. Sunnudagaskólinn þennan fyrsta sunnudag í september verður í rólegri kantinum en svo bryjar starfið með fullum krafti 8. september. Börn og fjölskyldur eru velkomin í Hallgrímskirkju.