Hvernig mæltist sr. Ragnari?

09. mars 2019
Hvað sagði og kenndi sr. Ragnar Fjalar Lárusson? Sr. Þórsteinn Ragnarsson fjallar um prédikarann Ragnar Fjalar sunnudaginn 10. mars kl. 10. Framsagan og umræður verða í Suðursal Hallgrímskirkju. Fyrir viku síðan var fjallað um dr. Jakob Jónsson, þessa helgi um sr. Ragnar og eftir viku um sr. Karl Sigurbjörnsson. Allir velkomnir sem hafa áhuga á kenningu kristninnar og prédikun presta þjóðkirkjunnar.