Irena Ch?ibková leikur á Alþjóðlegu orgelsumri laugardaginn 30. júní kl. 12

24. júní 2018
Laugardaginn 30. júní kl. 12 er komið að fyrstu alþjóðlegu orgelstjörnu sumarsins á Alþjóðlegu orgelsumri Hallgrímskirkju. Irena Ch?ibková frá Tékklandi, sem er aðalorganisti við hina frægu Basilíku Heilags Jakobs í miðborg Prag leikur á Klaisorgel Hallgrímskirkju. Irena mun leika verk eftir Bernando Storace, Jean-Marie Plum, Konsert í h-moll eftir Walther og Marche religieuse eftir Guilmant sem byggist á einum af þekktu kórköflunum í óratóríunni Messías eftir Handel.

Miðaverð er kr. 2.000.



Irena Ch?ibková er aðalorganisti Basilíku Heilags Jakobs í miðborg Prag. Þar hefur hún lagt grunninn að mörgum kirkjutónleikaröðum, m.a. Alþjóðlegri orgelhátíð heilags Jakobs sem er talin með fremstu tónlistarhátíðum í Evrópu. Þá eru sunnudagstónleikar hennar „Hálftíma orgeltónlist í basilíkunni“ mjög vinsælir.

Irena Ch?ibková stundaði nám við Krom??íž Tónlistarskólann hjá K. Pokora, við Listaakademíuna í Prag hjá próf. M. Šlechta og í París hjá Susan Landale. Góð frammistaða í alþjóðlegum orgelkeppnum lagði grunninn að vinsældum hennar sem konsertorganista og hún hefur komið fram víða um heim auk þess að vinna með leiðandi tónlistarmönnum, kórum og hljómsveitum.

Tónverkaskrá Irenu nær frá barokktímabilinu til nútímans með sérstaka áherslu á franska orgeltónlist, verk J. S. Bachs og tékkneska tónlist, m.a. eftir fyrirrennara sína við orgelið í basilíkunni. Hún er einnig virtur kennari í orgelleik í heimalandi sínu.