Jólatónlistarhátíð í Hallgrímskirkju 1.-31. des. 2018.

14. desember 2018
Klais orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992 og hefur sú skemmtilega hefð skapast að halda jólatónleika með orgelinu kringum vígsluafmælisdag orgelsins. 

 



Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika sunnudaginn 16. desember kl. 17 með Láru Bryndísi Eggertsdóttur, organista Hjallakirkju í Kópavogi, en hún er nýflutt aftur heim til Íslands eftir 10 ára dvöl í Danmörku við nám og störf. 

Lára Bryndís gjörþekkir Klais orgelið eftir að hafa stundað þar nám og starfað sem afleysingaorganisti en hún útskrifaðist með hæstu einkunn, þegar hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar 2002, þ.s. Hörður Áskelsson organisti kirkjunnar var kennari hennar. Hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014, þar sem aðalkennarar hennar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf. Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum, en hóf störf sem organisti Hjallakirkju sl. haust. 

Lára Bryndís leikur aðgengilega og hrífandi efnisskrá með verkum tengdum aðventu og jólum eftir Corelli, J.S. Bach, Daquien, Brahms o.fl. og með annarra hátíðlegra og stemmningsfullra verka er umritun á hinum dáða og fallega jólakonsert eftir Corelli. 

Aðgangseyrir: 3000 kr. Miðasala er við innganginn og á MIDI.is.

Í NÁLÆGÐ JÓLA- LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR ORGEL


Hallgrímskirkju 16. desember 2018 


 


 Efnisskrá:


Johann Sebastian Bach (1685-1750)Nun komm, der Heiden Heiland BWV 659 


Wachet auf, ruft uns die Stimme BWV 645 


Louis-Claude Daquin (1694-1772)Noël VI sur les jeux d'anches et en duo 


Alexandre Guilmant (1837-1911)Offertoire Sur Le Noël: Joseph Est Bien Marié Op.60 nr.5 


Carsten Klomp (*1965)Noël des bergers 


Pietro Yon (1886-1943)Advent „First Religious Suite for Organ“ 


Prelude (Rorate Coeli) 


Introit (Veni Emmanuel) 


Finale (Creator alme siderum) 


Gesù Bambino (Adeste fideles) 


Johannes Brahms (1833-1897)Es ist ein Ros' entsprungen Op.122 nr.5 


Sigfrid Karg-Elert (1877-1933)Aus meines Herzens Grunde Op.65 nr.2 


Arcangelo Corelli (1653-1713)Concerto Grosso op.6 nr.8  "fatto per la Notte di Natale" 


(umritun/transcription LBE) 


Vivace – Grave 


Allegro 


Adagio – Allegro – Adagio 


Vivace 


Pastorale ad libitum