Jólin hans Hallgríms á aðventunni – Opið fyrir skráningu á abler.io
22. október
Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja býður leikskóla- og grunnskólabörnum á aldrinum 3-10 ára í Reykjavík og nágrenni, að koma í heimsókn í Hallgrímskirkju á sýninguna „Jólin hans Hallgríms“ í aðdraganda jólanna. Sýningin byggir á samnefndri bók Steinunnar Jóhannesdóttur. Tekið verður á móti að hámarki 4x hópum íeða 60 börnum í einu á virkum dögum í desember. Hver heimsókn tekur u.þ.b. 40 mínútur og geta kennarar og leikskólakennarar bókað heimsókn í gegn umþennan hlekk á Abler.ioAðgangur er ókeypis!
Í heimsókninni er skoðunarferð um kirkjuna og sagt frá kirkjumunum. Börnin fá stutta endursögn úr bókinni Jólin hans Hallgríms en hún segir frá undirbúningi jólanna hjá Hallgrími Péturssyni þegar hann var ungur drengur og hvernig jólin voru fyrir 400 árum á Íslandi. Verkefnið hefur mælst vel fyrir og fengið fengið frábær viðbrögð.
Baðstofa hefur verið gerð fyrir sýninguna þar er hægt að vitja jóla fortíðar. Í baðstofunni má finna muni sem fjallað er um í bókinni og leikararnir Níels Thibaud Girerd, Pálmi Freyr Hauksson og Guðmundur Einar Láru Sigurðsson töfra fram jólastemningu sem vísa til sögunnar.
Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við undirbúning jólanna hjá heimilisfólkinu í Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur átti heima. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.
Hér er skemmtilegt kynningarmyndbandfrá leikurunum Níelsi og Pálma um Jólin hans Hallgríms.