Kammerkórinn Schola cantorum hlýtur 2 tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna

28. febrúar 2017


Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, er tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki sígildrar - og samtímatónlistar. Kórinn hlaut tvær tilnefningar, fyrir plötu ársins, Meditatio og sem Tónlistarflytjandi ársins.

Í tilkynningu sem Íslensku tónlistarverðlaunin sendu frá segir:

PLATA ÁRSINS

Schola cantorum – Meditatio

Stórglæsilegur hljómdiskur Schola cantorum, Meditatio, trónir sem krúna á tuttugu ára starfstíð eins helsta kammerkórs landsins. Metnaður og heildarhugsun skín gegnum verkefnaval sem og uppröðun, og stórbrotin hljómgæði færa hljómdiskinn í hásæti út fyrir landsteina á meðal þess besta sem gerist.

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS

Schola cantorum

Tuttugasta starfsár Schola cantorum var afar öflugt. Efnisskrá kórsins var metnaðarfull og fól m.a. í sér frumflutning á Requiem eftir Sigurð Sævarsson og Fyrir ljósi myrkrið flýr eftir Huga Guðmundsson auk Sálumessu eftir Kjell Mörk Karlsen. Kórinn lauk starfsárinu með flutningi Jólaóratoríu J.S. Bach ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju. Einsöngvarar komu úr röðum kórmeðlima og auðheyrt að í kórnum er valinn maður í hverju rúmi. Á skírdagskvöld flutti kórinn endurreisnartónlist m.a. Miserere eftir Allegri. Sá flutningur ásamt tónlistarflutningi kórsins á útgáfutónleikum disksins Meditatio sýndi gæðasöng kórsins í réttu ljósi – söng sem einkennist af einstaklega fallegri tónmyndun og samhæfingu.

Listvinafélag Hallgrímskirkju er stoltur bakhjarl kammerkórsins Schola cantorum og óskar kórnum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

Íslensku tónlistarverðlaunin verða haldin hátíðleg í Hörpu fimmtudaginn 2. mars og verða sýnd beinni útsendingu á RÚV

Hér má sjá allar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2016:

http://iston.is/tilnefningar-til-islensku-tonlistarverdlaunanna-tilkynntar/

http://iston.is/tilnefningar2016/