Kammerkórinn Schola cantorum með opna tónleika á uppstigningardag kl. 17

24. maí 2017
Kammerkórinn Schola cantorum býður frítt á tónleika!
25. maí, Hallgrímskirkja klukkan 17:00. Allir velkomnir.


Hugarró, íhugun og mátturinn í músíkinni. Þessi orð eiga vel við tónlistina sem prýðir Meditatio, plötu Schola cantorum, sem kom út hjá BIS s.l. sumar. Gagnrýnendur um allan heim hafa lofað Meditatio bæði hvað varðar söng og efnisval og kórinn mun því flytja valin verk af diskinum í Hallgrímskirkju 25. maí, kl. 17.00. Verkin á plötunni eru öll frá 20. og 21. öld, þeirra á meðal tvö eftir tónskáld sem syngja í kórnum, þá Hreiðar Inga Þorsteinsson og Sigurð Sævarsson, auk verks eftir stjórnanda kórsins Hörð Áskelsson. Á efniskránni eru líka verk eftir tónskáldin, Arvo Pärt, James MacMillan og Eric Whitacre. Í lok tónleikanna gefst tónleikagestum tækifæri að heyra íslenskan frumflutning á þremur mótettum, sem samdar voru fyrir kórinn fyrir tónleika í Walt Disney Hall. Textar verkanna eru vers úr Hávamálum sem fjalla um vináttuna, en verkin voru samin með styrk úr Tónskáldasjóði RÚV og eru eftir Gunnar Andreas Kristinsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Huga Guðmundsson.

Hörður Áskelsson, organisti og kantor í Hallgrímskirkju hefur stjórnað hópnum frá stofnun hans eða í rúm 20 ár. Frá fyrstu tíð hefur verið lögð áhersla á valinn mann í hverju rúmi og unnið ötullega að því að mynda áhrifaríkan samhljóm í gegnum sönginn sem oftast fer fram án undirleiks. Verkefnin hafa verið mjög fjölbreytt í gegnum tíðina og kórinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir fyrir flutning, nú síðast Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins 2016.

Í apríl kom kórinn fram á listahátíðinni Reykjavik Festival í Los Angeles sem fór fram í Walt Disney Concert Hall. Á þessari hátíð var íslensk tónlist í forgrunni og fjöldi íslenskra listamanna kom fram, þeirra á meðal Sigurrós, Daníel Bjarnason og Björk. Schola Cantorum kom fram nokkrum sinnum á stóra sviðinu í Walt Disney Concert Hall og frumflutti verk eftir íslensku tónskáldin Gunnar Andreas Kristinsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson, Huga Guðmundsson og Þuríði Jónsdóttur. Kórinn vílar fátt fyrir sér í flutningi og tekst glaður á við krefjandi verkefni og söng til dæmis í tebolla í verki Þuríðar og myndaði með röddum hljóðheim eldgamallar upptöku á íslensku þjóðlagi. Verk Þuríðar fékk jákvæða ahygli á hátíðinni. Umfjöllun erlendra blaðamanna um framgöngu Schola Cantorum á hátíðinni var góð og í Wall Street Journal segir m.a.: ,,sung by the festival’s great find, the Schola cantorum Reykjavík, … proved warm and precise every time they performed (five programs total) “ Í maí kom hópurinn svo fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og söng tveggja kóra Bach mótettu á sérstakri tónleikaröð þar sem markmiðið er meðal annars að skapa nánd við áhorfendur.

Boðstónleikana 25. maí má skoða sem þakkargjörð Schola cantorum fyrir þá velgengni sem kórinn hefur notið. Schola cantorum hvetur áhorfendur til að mæta og njóta fallegrar tónlistar.