Krílasálmar

15. október 2018


Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.  Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska þeirra.

Leiðbeinandur eru Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.