Krílasálmar

20. janúar 2020


Nýtt námskeið í krílasálmum hefst þriðjudaginn 14. janúar. Námskeið verður að þessu sinni kl. 11:30 - 12:15 og verður í 6 vikur. Ljúf tónlistarstund fyrir 3 - 18 mánaða kríli og foreldra þeirra. Ókeypis aðgangur en nauðsynlegt er að skrá sig hjá Kristnýju Rós Gústafsdóttur, verkefnastjóra- og djákna: kristny@hallgrimskirkja.is. Einnig með Kristnýju er Ragnheiður Bjarnadóttir tónmenntakennari.