Krílasálmar í Hallgrímskirkju

30. október 2016


Krílasálmar


tónlistarstundir fyrir lítil kríli og krútt


Námskeið í Hallgrímskirkju 3. nóv-8.des 2016


Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.  Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska þeirra.

Nánari upplýsingar og skráning á arngerdur@laugarneskirkja.is og inga@hallgrimskirkja.is.

Námskeiðisgjald er aðeins kr. 5000.