Kyrrðarstund

14. nóvember 2017




Fimmtudaginn 16. nóvember kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.

Verið hjartanlega velkomin.