Kyrrðarstund

11. september 2018
Fimmtudaginn 13. september  er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.

Verið hjartanlega velkomin.