Kyrrðarstund á fimmtudögum

20. september 2016




Kyrrðarstundirnar halda áfram í vetur og eru á fimmtudögum kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu með bæn. Prestur er sr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar.

Verið hjartanlega velkomin!