Langar þig að syngja í kór?

08. mars 2016
ERT ÞÚ Á ALDRINUM 9-13 ÁRA OG HEFUR GAMAN AF ÞVÍ AÐ SYNGJA?

Hallgrímskirkja endurvekur kórstarf með ungu fólki, veturinn 2015-2016.

Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.

Kórstjóri er Ása Valgerður Sigurðardóttir.

Kórinn æfir tvisvar í viku, á þriðjudögum kl. 16:30 – 17.:30 og fimmtudögum kl 16:30 – 18:45. Starfstímabil kórsins er frá byrjun september til maí.

Verkefni kórsins framundan eru m.a. söngur í messu á Pálmasunnudegi með Mótettukór Hallgrímskirkju, Söngvahátíð barnanna á Skírdag, æfingadagur eða söngur í fjölskyldumessu 17. apríl, og fjölskyldumessa og vorhátíð æskulýðsstarfs Hallgrímskirkju. Kórinn heldur stutta tónleika eftir messu áður en vorhátíðin verður sett. Kórinn hefur þegar í vetur tekið þátt í fjölskyldumessu, æfingadegi/heimsækja annan kór, aftansöngi á aðfangadegi ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju, kórsöngi á Reykjavík Peace Festival (Friðarhátíð) í febrúar 2016, Workshop (smiðja) með tónskáldinu Ben Perry í febrúar, hátíðartónleikar í Hörpu í febrúar,

Nánari upplýsingar um skráningu og kórstarfið í Hallgrímskirkju fást hjá Ásu Valgerði kórstjóra og undir þessum link: Barna og unglingakór Hallgrímskirkju

Netfangið er: asa@hallgrimskirkja.is og síminn hennar er: 699 4373 og einnig eru fleiri upplýsingar inn á facebook síðu hópsins: Barna og unglingakór Hallgrímskirkju á facebook.

Tónleikar í lok æfingadags á haustönn Kvöldvaka-farið upp í Hallgrímskirkjuturn Hátíðarmessa á aðfangadag Á kóræfingu 20. desember 2015 fjölskyldumessa