Líflegt safnaðarstarf á nýju ári!

08. janúar 2020


Allir velkomnir!



Hádegisbænir: Hófust aftur mánudaginn 6. janúar og er alla mánudaga kl. 12:15. Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir og stundin er ávallt við Maríualtari inn í kirkju.

Fyrirbænamessa/guðþjónusta: ...Er byrjað aftur. Er á þriðjudögum milli kl. 10.30 – 11:30. Samverurnar eru í kórkjallara.

Árdegismessa: Alla miðvikudaga í kór kirkjunnar kl. 8. Morgunmatur eftir messu.

Kyrrðarstundir: Hefjast aftur fimmtudaginn 16. janúar kl. 12 og verða alla fimmtudaga framm á vor. Súpa á vægu verði í Suðursal að lokinni stund.

Kvenfélag Hallgrímskirkju: Nánar auglýst síðar inn á vef Hallgrimskirkju og á fb síðu kvenfélagsins.

Kvöldkirkjan: Verður næst fimmtudaginn 23. janúar kl. 19 - 21.

Orgel matinée: Verður fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 12 frá febrúar til maí.

…og að sjálfsögðu er messað alla sunnudaga kl. 11 og ensk messa kl. 14 síðasta sunnudag í hverjum mánuði.
Æskulýðsstarf Hallgrímskirkju

Sunnudagaskólinn: Hefst aftur í messu sunnudaginn 5. janúar kl. 11.

Krílasálmar: Hefst aftur þriðjudaginn 14. janúar kl. 11:30-12:15.

Foreldramorgnar: Hefjast aftur miðvikudaginn 8. janúar kl. 10 – 12 og hist verður í kórkjallaranum.

Æskulýðsfélagið Örkin: Hittist í kórkjallarnum alla þriðjudaga frá með 14. janúar kl. 19:30 – 21:30.

TTT – tíu til 12 ára starf: Verður á vorönn en nánar auglýst síðar.

Fermingarstarf: Hefst aftur miðvikudaginn 15. janúar í kórkjallaranum og verður í tveim hópum. Sá fyrri kl. 15 – 16 og sá seinni kl. 16:15 - 17:15.

Kórastarf
Mótettukór Hallgrímskirkju: Mánudaga kl. 18 - 19:30 og þriðjudaga kl. 19:30 – 22.

Schola cantorum: fimmtudaga kl. 16:30 – 19.

Listvinafélag Hallgrímskirkju efnir til fjölda tónleika á árinu og nánari upplýsingar um þá eru að finna á listvinafelag.is.

Og einnig viljum við benda öllum á dagatal kirkjunnar inn á heimasíðu Hallgrímskirkju.