Lífsverk - Opnun sýningar Guðrúnar A. Tryggvadóttur

28. nóvember 2019

Opnun sýningar Guðrúnar A. Tryggvadóttur í Hallgrímskirkja.
Sunnudagur 1. desember, eftir messu kl. 12.15.




Guðrún A. Tryggvadóttir sýnir málverk sem byggja á hugmyndafræðilegum og sögulegum grunni og fjalla um smiðinn, útskurðarmeistarann og listmálarann Ámunda Jónsson (1738-1805). Jafnhliða sýningunni kemur út bók hennar LÍFSVERK – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar. Bókin verður til sölu í Guðbrandsstofu (kirkjubúðinni) við opnunina. Sýningin stendur til 1. mars 2020. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram.

Ókeypis aðgangur og allir hjartanlega velkomnir.

Um bókina Lífsverk - Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar


Í þessari litríku og heillandi bók leitar Guðrún A. Tryggvadóttir að lífsverki forföður síns, Ámunda Jónssonar, smiðs, listmálara og bíldskera á 18. öld. Hún endurskapar ævi hans og iðju í vatnslitamyndum í því skyni að nálgast fortíðina og lætur innsæinu eftir að kalla fram svör – í myndverkum og textum til íhugunar.

 

Í bókinni eru ljósmyndir af öllum þekktum verkum Ámunda auk fræðigreina eftir Arndísi S. Árnadóttur og Sólveigu Jónsdóttur sem ætlað er að auðga þessa sögu, ljá henni líf og styrkja sambandið við líf og list fortíðar. Með allt þetta í höndum er það síðan verkefni áhorfandans og lesandans að spegla sinn eigin reynsluheim í því sem hér er borið fram.

„Ég vil spegla nútímann í fornum veruleika í von um skilning á eigin tilveru,“ segir Guðrún A. Tryggvadóttir um ferðalag sitt til fortíðar. Með þeim orðum hvetur hún okkur til íhugunar um það hvernig umhverfi, uppruni og reynsla móta menn, letja eða hvetja á hverri tíð, og hvernig fjarlægðin milli okkar og Ámunda Jónssonar í árum og öldum býður okkur að skynja raunverulegt virði þess sem eitt sinn var.