Ljós í lofti glæðist – Jólatónleikar Mótettukórsins

04. desember 2015

desember 5 | 17:00 - 18:30


desember 6 | 17:00 - 18:30


desember 8 | 20:00 - 21:30






Mótettukór Hallgrímskirkju hefur í rúm þrjátíu ár glatt Íslendinga á jólum og skipa jólatónleikar kórsins veglegan sess í ríkulegu jólahaldi í Reykjavík. Í ár heldur kórinn þrenna tónleika á aðventunni þar sem hinn hreini kórsöngur, skreyttur orgelleik og málmblæstri, verður í sviðsljósinu. Kórfélagar munu láta ljós sitt skína í ýmsum hlutverkum á tónleikunum og verður orgelleikur á hið mikla Klais-orgel Hallgrímskirkju til að mynda í höndum Lenku Matéova, organista og kórfélaga. Á efnisskránni er hátíðleg aðventu- og jólatónlist þar sem ofnir eru saman þýskir barokksálmar og sjaldheyrðir, enskir jólasöngvar frá 20. öld. Auk þess verður fluttur fjöldinn allur af þekktum jólasálmum og nýlegri verkum. Í vændum er hátíðleg stund á aðventunni í fagurlega skreyttri kirkjunni. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Aðgangseyrir kr. 4900/3900 og listvinir fá 50% afslátt.

Miðasala