Lítil saga úr orgelhúsi á Sumardaginn fyrsta - ókeypis aðgangur

17. apríl 2018

Lítil saga úr orgelhúsi


Sumardagurinn fyrsti 19. apríl kl. 13


Á Sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl 2018, verður tónlistarævintýrið Lítil saga úr orgelhúsi flutt í Hallgrímskirkju. Lítil saga úr orgelhúsi er  skemmtilegt ævintýri sem fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Tvær sýningar verða á ævintýrinu, sú fyrri verður á íslensku kl. 13 en sú seinni á ensku kl. 14:30. Ævintýrið sömdu þau Guðný Einarsdóttir, organisti, en hún skrifaði söguna, Michael Jón Clarke tónskáld, sem samdi tónlistina og Fanney Sizemore sem myndskreytti ævintýrið. Flytjendur eru þau Guðný Einarsdóttir, organisti, Bergþór Pálsson sögumaður á íslensku og Michael Jón Clarke, sögumaður á ensku.

Sýningarnar eru haldnar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og eru hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2108.

Aðgangur ókeypis