Ályktun vegna tónlistarmála

12. maí 2021


Á fundi sóknarnefndar Hallgrímssóknar þriðjudaginn 11. maí 2021 var samhljóða samþykkt eftirfarandi ályktun.

 

Fundur sóknarnefndar Hallgrímskirkju 11. maí 2021

Ályktun vegna tónlistarmála

Sóknarnefnd Hallgrímssafnaðar harmar að Hörður Áskelsson, organisti kirkjunnar, skuli hafa óskað eftir starfslokasamningi í stað þess að gera heiðurslaunasamning við kirkjuna sem honum stóð til boða. Heiðurslaunasamningurinn hefði falið í sér starfsaðstöðu og fjármuni fyrir Hörð til þess að vinna með kórum í Hallgrímskirkju að þremur stórverkefnum auk annarra viðfangsefna næstu tvö ár.

Hörður kveður Hallgrímskirkju frá og með 1. júní næstkomandi ásamt Mótettukórnum, sem kenndi sig við Hallgrímskirkju, og Schola cantorum. Herði Áskelssyni eru þökkuð áratuga störf sem hafa auðgað tónlistarlíf kirkju og þjóðar og skilað mikilvægum tónlistararfi. Félögum í kórunum tveimur er þakkaður fagur söngur í helgihaldinu, á tónleikum og þátttaka í lífi kirkjunnar.

Sóknarnefnd hefur fylgst með samningagerð við fráfarandi organista og lýsir stuðningi við formann, framkvæmdanefnd, framkvæmdastjóra og presta varðandi það hvernig þau hafa haldið á málum.

Sóknarnefndin samþykkir að Björn Steinar Sólbergsson organisti leiði tónlistarstarf í Hallgrímskirkju. Björn Steinar er heimamaður í Hallgrímskirkju, eftirsóttur konsertorganisti hér heima og erlendis og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar.

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju