Messa, þriðji sunnudagur eftir þrettánda, verður
22. janúar kl. 11. Kór Harvardskóla syngur með félögum úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson er organisti. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Barnastarfið er í umsjón Rósu, Ragnheiðar og Guðjóns.
Allir hjartanlega velkomnir.