Messa og barnastarf 2. október kl. 11

30. september 2016


Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu.

Verið hjartanlega velkomin til messu.