Messa og barnastarf 4. nóvember kl. 11

01. nóvember 2018


Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Úrsúlu Árnadóttur, presti fatlaðra. Messuþjónar aðstoða. Minnst látinna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir.

Kaffisopi eftir messu.

Verið velkomin