Sunnudagurinn 24. nóvember
Síðasti sunnudagur kirkjuársins
Messa og barnastarf kl. 11:
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Umsjón barnastarfs: Bogi Benediktsson og Rósa Árnadóttir. Kaffisopi eftir messu.
Messuskráin er hér fyrir neðan í tölvutæku formi:
191124.Síðasti.sd.kirkjuársins
Ensk messa kl. 14:
Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir.
Kaffisopi eftir messu.
Allir velkomnir!