Messa og barnastarf sunnudaginn 17. mars kl. 11

14. mars 2019

Messa og barnastarf 17. mars kl. 11


Annar sunnudagur í föstu




Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson.
Inga Rós Ingólfsdóttir leikur á selló. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Sunnudagsprédikunin mun fjalla um 6. boðorðið. Kaffisopi eftir messu.

Allir velkomnir.

 

Hérna fyrir neðan er messuskráin í tölvutæku formi:

190317.Annar.sd.í.föstu