Messa og barnastarf sunnudaginn 3. nóvember kl. 11

31. október 2019

Sunnudagurinn 3. nóvember kl. 11 - Allra heilagra messa


Prestar: Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Irmu Sjöfn Óskarsdóttur.
Messuþjónar aðstoða. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Schola cantorum syngja.
Stjórnandi Hörður Áskelsson. Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, sópran syngur einsöng.
Umsjón barnastarfs: Kristný Gústafsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir.

Í messulok verður látinna minnst með ljósburði. Kertum er komið fyrir á kórtröppum.

Kaffisopi eftir messu. 

Verið velkomin. 

Messuskráin er hér fyrir neðan í tölvutæku formi:

191103.Tuttugasti.sd.e.þrenningarhátíð