Messa og barnastund 12. júlí kl 11

11. júlí 2015


ALLIR ERU HJARTANLEGA VELKKOMNIR Í HALLGRÍMSKIRKJU SUNNUDAGINN 12. JÚLÍ KL. 11:00. Þá er messa og sögustund í kirkjunnni. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og honum til aðstoðar er séra Leonard Ashford og messuþjónar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsönginn undir stjórn organistans Eyþórs Franzsonar Wechner. Þá syngur Kapellukór Peterhous garðsins við Háskólann í Cambridge. Stjórnandi kórisns er Claudia Grinnell og organisti er Gabriel Chiu. Kórinn heldur einnig tónleikar strax eftir messuna. Sögustundin er fyrir börnin og svo hittumst við öll yfir kaffisopa í Suðursalnum eftir messuna.

Sálmarnir sem sungir verða eru:

538 Heilagi Guð á himni og jörð

Kyrie úr Missa Secunda, Hans Leo Hassler 1564-1612

Graduale: Domine, refugium, Luke Flintoft 1680- 1727

540 Ljós ert þú lýði

367 Eigi stjörnum ofar

-------

O sing joyfully, Adrian Batten 1591 – 1637

47 Gegnum Jesú helgast hjarta

Agnus Dei úr Missa Secunda, Hans Leo Hassler 1564-1612.

Anthem: Rejoice in the Lord alway – Henry Purcell 1659 – 1695

712 Dag í senn eitt andartak í einu

Textar 6. sunnudags eftir þrenningarhátíð - Textaröð: B

Lexía: Jes 42.5-7?

Svo segir Drottinn Guð?sem skapaði himininn og þandi hann út,?sem breiddi út jörðina með öllu sem á henni vex, ?sá er andardrátt gaf jarðarbúum ?og lífsanda þeim sem á jörðinni ganga:? Ég, Drottinn, kallaði þig í réttlæti?og held í hönd þína.? Ég móta þig,? geri þig að sáttmála fyrir þjóðirnar ?og að ljósi fyrir lýðina ?til að opna hin blindu augu, ?leiða fanga úr varðhaldi? og úr dýflissu þá sem í myrkri sitja.

Pistill: Gal 3.26-29

Með því að trúa á Krist Jesú eruð þið öll Guðs börn. Þið öll, sem eruð skírð til samfélags við Krist, hafið íklæðst Kristi. Hér er hvorki Gyðingur né annarrar þjóðar maður, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú. Ef þið eruð í samfélagi við Krist þá eruð þið niðjar Abrahams og erfið það sem honum var heitið.

Guðspjall: Matt 5.17-19?

Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu uns allt er komið fram. Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það mun kallast minnstur í himnaríki en sá sem heldur þau og kennir mun mikill kallast í himnaríki.