Messa á Uppstigningardag og vorferð Hallgrímskirkju

23. maí 2017
Næstkomandi fimmtudag, Uppstigningardag kl. 11 er messa í Hallgrímskirkju. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari og Karen Hjartardóttir guðfræðinemi prédikar. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organsti er Hörður Áskelsson.

Eftir messu verður farið í ævintýralega og skemmtilega vorferð. Farið verður með rútu austur fyrir fjall. Nánari upplýsingar í mynd fyrir neðan. Minni á skráningu hjá Ingu Harðardóttur, inga@hallgrimskirkja.is / s: 6936696.