Messufall vegna sóttvarnaaðgerða

26. janúar 2022
Fréttir

Guðsþjónustur og tónleikar falla niður í Hallgrímskirkju frá og með áramótum þar til annað verður ákveðið. Biskup Íslands hefur óskað eftir að fólki verði ekki stefnt til kirknanna til opinbers helgihalds vegna COVID-19. En Hallgrímskirkja er opin frá kl. 10-17 alla daga. Hægt er að koma í kirkjuna til bæna, íhugunar, kyrrðarstundar og einnig panta samtal við prest. Verið velkomin í Hallgrímskirkju.