Málþing um dr. Jakob Jónsson, Hallgrímskirkjuprest

23. september 2015

Dr. Jakob Jónsson var prestur Hallgrímskirkju, fræðimaður, rithöfundur og skáld. Hann skrifaði m.a. merka doktorsritgerð um kímni í Nýja testamentinu. Ritgerðin HUMOUR AND IRONY IN THE NEW TESTAMENT kom út fyrir réttir hálfri öld. Að gefnu því tilefni verður efnt til málþings í Suðursal Hallgrímskirkju föstudaginn 25. september 2015 – 13:15 til 15:45.











Fundarstjóri:  Ragnhildur Bragadóttir sagnfræðingur
Kl. 13:20 – 13:50  Dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur:
Kímni og skop í hálfa öld. Bókin og útbreiðsla hennar í fræðaheiminum samkvæmt veraldarvefnum.
Kl. 13:50 – 14:05  Jakob S. Jónsson leikhúsfræðingur og leikstjóri:
Jakob Jónsson frá Hrauni: Leikskáld sem leynir á sér
Kl. 14:05 – 14:20    Dr. Hjalti Hugason prófessor, Háskóla Íslands:
Húmor, ironía og melankolía — Hugleiðingar um guðfræðinginn dr. Jakob Jónsson
Kl.  14:20 – 14:40   Dr. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur Hallgrímskirkju:
Um Hallgrímssálma, höfund þeirra og dr. Jakob Jónsson
Kl.  14:40 – 14:50  Spurningar og svör.

Allir velkomnir og kaffiveitingar verða í málþingslok.