Dagana 29. maí – 1. júní 2025 verður Norræna kirkjukóramótið (NKSF) haldið í Reykjavík, og fer meginhluti viðburða fram í Hallgrímskirkju. Hátíðin sameinar kirkjukóra og söngvara frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum og Íslandi, og er markmið hennar að efla tengsl, miðla menningu og lyfta upp kirkjutónlist á Norðurlöndum.
Allir opinberir viðburðir hátíðarinnar – tónleikar og morgunbænir – eru haldnir í Hallgrímskirkju og eru opnir almenningi og ókeypis. Hvetjum við gesti og íbúa til að taka þátt í þessari einstöku tónlistarhátíð sem spannar fjölbreytta dagskrá og sameinar sál og söng í helgu rými.
Dagskrá í Hallgrímskirkju:
Fimmtudagur 29. maí
20:00 – Opnunartónleikar NKSF 2025
Föstudagur 30. maí
08:30 – Morgunbæn / Morning Prayer
20:00 – Hátíðartónleikar / Festival Concert
Laugardagur 31. maí
08:30 – Morgunbæn / Morning Prayer
17:00 – Vinnusmiðjutónleikar / Workshop Concerts
Hallgrímskirkja – Þinn staður!
Sunnudagur 1. júní
11:00 – Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju
Við í Hallgrímskirkju erum stolt af því að hýsa þessa hátíð og hlökkum til að taka á móti gestum hvaðanæva að úr norðri.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.nksf2025.is
--ENGLISH--
Nordic Church Choir Festival 2025 at Hallgrímskirkja
The Nordic Church Choir Festival (NKSF) will take place in Reykjavík from May 29 to June 1, 2025, with most of it's events held in Hallgrímskirkja. The festival brings together church choirs and singers from Norway, Denmark, Sweden, Finland, the Faroe Islands, and Iceland, celebrating sacred music and Nordic choral traditions.
All public events during the festival – including concerts and morning prayers – will take place in Hallgrímskirkja and are free of charge and open to all. We warmly welcome guests and locals to experience this unique musical celebration in the heart of Reykjavík.
Festival Program in Hallgrímskirkja:
Thursday, May 29
20:00 – Opening Concert of NKSF 2025
Friday, May 30
08:30 – Morning Prayer
20:00 – Festival Concert
Saturday, May 31
08:30 – Morning Prayer
17:00 – Workshop Concerts
Sunday, June 1
11:00 – Festival Service
Hallgrímskirkja is proud to host this joyful and meaningful gathering of voices from across the Nordic region.
For more information, visit www.nksf2025.is
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK!