Opnun sýningarinnar Áheit/Votive eftir Ingu Sigríði Ragnarsdóttur

17. maí 2018


Inga S. Ragnarsdóttir sýnir í Hallgrímskirkju


Opnun á Hvítasunnudag kl. 12.15


VOTIV- ÁHEIT er yfirskrift nýrrar sýningar Ingu S. Ragnarsdóttur, sem sýnir á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og opnar sýningin við lok hátíðarmessu á hvítasunnudag um kl. 12.15.

Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að taka þátt messunni, þ.s. mikill tónlistarflutningur er og listakonan er kynnt í messulok. Messunni er útvarpað er beint á Rás 1 og syngur Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar og Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klaisorgelið, en prestar eru sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson og lesið er á mörgum tungumálum í tilefni af hátíð heilags anda. Sýningin er síðan formlega sett í forkirkjunni um kl. 12.15 og Hallgrímssöfnuður býður upp á léttar veitingar. Sýningarstjóri er Rósa Gísladóttir.

Um sýninguna:

Áheit / Votiv

Á þýsku er orðið Votiv notað yfir áheit eða fórnargjöf en það er líka til í mörgum öðrum málum, t.d. í ensku votive og í frönsku votif; orðin eru komin úr latínu votivus 'lofaður'.
Fórnargjafir hafa verið hluti ólíkra menningarheima í aldanna rás, þær fyrstu sem vitað er um í Evrópu eru frá steinöld.
Í kristindómi náðu venjurnar í kring um fórnargjafir hámarki á barokktíma.
Það er í þeirri birtingarmynd sem Inga S. Ragnarsdóttir kynnist þessum venjum. Fyrir ungan myndhöggvara frá Íslandi virkuðu ofhlaðnar barokk-kirkjur Suður-Þýskalands rétt eins og framandi hof í fjarlægum heimi. Hún tengdi við hefðir votiv-gjafanna þar sem áheit eru ríkur þáttur í íslenskum menningararfi, til dæmis áheitin á

Strandakirkju í Selvogi. Kirkjurnar urðu fljótt innblástur fyrir Ingu en þar kynntist hún efnivið sem hún hefur unnið í alla tíð siðan. Um er að ræða stucco-marmara, sem er í raun gervimarmari búinn til úr blöndu af gipsi, beinalími og litadufti. Nú á dögum hefur arfleifð handverks og listsköpunar sem spratt af hinum manngerða

efniviði nánast horfið. Í höndum Ingu S. Ragnarsdóttur fær hann þó nýtt líf. Sem myndhöggvari tekst hún á við efnið og litinn og mótar í form. Þessi form eru nú til sýnis í forrými Hallgrímskirkju. Stucco-skúlptúrarnir sem eru festir þar á veggi taka mið af fórnargjöfunum fyrri alda.

Inga hefur í verkum sínum glímt við spurningar um hringrás náttúrunnar, samband mannsins og umheimsins og velt fyrir sér samhenginu þar á milli. Á tímum barokksins, í tíð séra Hallgríms Péturssonar sálmaskálds, voru kirkjurnar frjósamur vettvangur listanna. Inga tengist þessari hefð
með nýstárlegum hætti og leggur út frá fórnargjöfum sem eru táknmyndir innsta kjarna mannsins sem og þess veraldlega,
en velferð alls er háð heilun jafnt efnislegri sem andlegri.

(úr grein Dorothée Kirch um sýninguna)

Sýningin stendur í allt sumar og lýkur í lok september. Opið er alla daga frá kl. 9-21 í sumar og er aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

 

Inga S. Ragnarsdóttir myndlistarmaður (f. 1955)
ólst upp í Reykjavík, stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Akademíuna í München, Diplóma 1987.
Starfandi myndlistarmaður bæði í Þýskalandi og á Íslandi. Hefur verið gestakennari við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands og haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða bæði í Þýskalandi og á Íslandi.
Hefur auk þess starfað sem sýningarstjóri og unnið að rannsóknum sem tengjast upphafi nútímamyndlistar í íslensku samfélagi.
Efni þessara rannsókna vann hún í samstarfi við Krístínu G. Guðnadóttur listfræðing og var það gefið út 2017 í bók sem heitir Útisýningar á Skólavörðuholti 1967-1973. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar víða um heim og útilistaverk hennar eru m.a. á opinberum svæðum í München og Düsseldorf í Þýskalandi.