Orgeltónleikar fimmtudaginn 17. ágúst kl. 12

16. ágúst 2017

Sólveig Anna Aradóttir


Tónlist eftir: N. Bruhns, J. Pachelbel, Jón Nordal




Sólveig Anna Aradóttir stundaði píanónám hjá Nínu Margrétar Grímsdóttur.
Hún ólst upp í barnakór hjá Þórunni Björnsdóttur og seinna hjá Þorgerði
Ingólfsdóttur en syngur nú með Sönghópnum við Tjörnina. Sólveig
útskrifaðist með kirkjutónlistarpróf frá Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar undir
leiðsögn Guðnýjar Einarsdóttur. Kórstjórnun nam hún hjá Herði Áskelssyni
og Magnúsi Ragnarssyni. Sólveig lauk BA-gráðu úr Skapandi tónlistarmiðlun
frá Listaháskóla Íslands og lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar
nú í vor undir leiðsögn Eyþórs Inga Jónssonar. Sólveig starfaði sem
organisti í Akureyrarkirkju frá hausti 2016 til mars 2017. Þá stýrði hún einnig
Kvennakór Akureyrar. Hún heldur út til frekara náms við Konunglega danska
tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn nú í haust.

Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2000.

Upplýsingar um Alþjóðlega Orgelsumarið í Hallgrímskirkju HÉR.