Orgeltónleikar með James D. Hicks laugardaginn 29. september kl. 17

27. september 2018
Bandaríski orgelleikarinn James David Hicks heldur tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju nk. laugardag 29. september kl. 17, þ.s. hann frumflytur m.a. verk eftir tvö íslensk tónskáld, Gunnar Andreas Kristinsson og Sigurð Sævarsson. 



Yfirskrift tónleikanna er Norræn orgeltónlist, en James hefur undanfarin ár lagt ríka áherslu á að auðga orgelbókmenntir Norðurlandanna með þvi að panta verk frá norrænum tónskáldum. Þessi verk hefur hann einnig hljóðritað fyrir geisladiska á mörg frægustu orgel Norðurlandanna og mun hann taka upp geisladisk á Klaisorgel Hallgrimskirkju á næstunni sem kemur út hjá útgáfufyrirtækinu Pro Organo.

Á tónleikunum á laugardaginn frumflytur James D. Hicks meðal annars orgelverkin "Lingua" (2018) eftir Gunnar Andreas Kristinsson og "Himna smiður" (2017) eftir Sigurð Sævarsson, sem hann hann pantaði frá þeim.

 

Tónleikarnir eru frábær vitnisburður um mikinn áhuga Hicks á norrænni tónlist, en hann leikur einnig verk eftir Kristian Blak, Fredrik Sixten, Nils Lindberg, Lars Karlsson (frumflutningur), Anders Börjesson, Jesper Madsen og "Fantasía um Ísland, farsæla frón" eftir  Hildigunni Rúnarsdóttur.

James D. Hicks er fæddur í Bandaríkjunum og lauk m.a. prófgráðum í tónlist við háskólana í Yale og Cincinatti, en hann starfaði m.a. í 26 ár við Biskupakirkjuna í Morristown í New  Jersey. Hann hefur haldið tónleika víða um heim og á síðustu árum hefur hann einbeitt sér að Norðurlöndunum þar sem hann hefur einnig dvalið við upptökur og tónleikahald.

Miðaverð: 2500 kr. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja. Miðasala á midi.is og við innganginn 1 klst. fyrir tónleika.

Nánari upplýsingar inn á listvinafelag.is

 

NORRÆN ORGELTÓNLIST

NORDIC JOURNEY/ORGAN MUSIC IN THE NORDIC TRADITION

FRUMFLUTT VERÐA VERK EFTIR / PREMIÉRE BY
GUNNAR ANDREAS KRISTINSSON, SIGURÐ SÆVARSSON OG LARS KARLSSONThis program is devoted to world premiere performances of works by Nordic composers commissioned by James D. Hicks.

Efnisskrá / Programme:

Fantasía um Ísland, farsælda Frón*(2015) Hildigunnur Rúnarsdóttir (b.1964) 

The Vikings Arthur Wills (b.1926)

Nordic Variations* (2018) Fredrik Sixten (b.1962) (based on the Íslandic folktune Sofðu unga ástin mín)

Himna smiður*(2017) World Premiere Sigurður Sævarsson (b.1963)

Leksand Tune (from Dalecarlian Reflections*, 2016) Nils Lindberg (b.1933) 

Who Can Sail Without The Wind* (2018) World Premiere Lars Karlsson (b.1953)

Three Settings of Folk Themes From Greenland* (2017) Kristian Blak (b.1947) Umiaq – Qujaq – Ajukutook

Toccata (from Tre stycken) Anders S. Börjesson (b.1975)

Lingua*(2018) World Premiere Gunnar Andreas Kristinsson (b.1976)  

PrætoriusVariationer Jesper Madsen (1957-1999) 

(* denotes commissioned work by James D. Hicks)

Fyrir þau sem vilja fleiri upplýsingar um James D. Hicks og hans norræna orgel ferðalag, skoðið jamesdhicks.com og hicksnordichike.com