Orgeltónleikar - Willibald Guggenmos

28. júlí 2017

Willibald Guggenmos


Organisti frá St. Gallen, Swiss


Laugardagurinn 29. júlí kl. 12 / Sunnudagurinn 30. júlí kl. 17


Tónlist eftir: Jean Marie Plum, Bourgeois, Garbizu, William Faulkes. / Gigout, Dupont, J.S. Bach, M.Dupré, Pierre Cochereau, Vierne.


Willibald Guggenmos lauk þremur Mmus-gráðum frá Tónlistarháskólunum í Augsburg og í München í Þýskalandi, í píanóleik, stjórnun og í orgelleik. Frá 2004 hefur hann verið dómorgansti í St. Gallen í Sviss. Áður var hann 17 ár við St Martin kirkjuna í Wangen í Allgäu og í þrjú ár organisti við dómkirkjuna í München. Til hliðar við organistastarfið hefur hann verið eftirsóttur orgelleikari víða um Evrópu og Ameríku, Austurlöndum fjær, Ástralíu og Nýja Sjálandi, við fræg orgel í dómkirkjum og tónleikasölum. Efnisskrá hans er yfirgripsmikil því hann hefur leikið öll orgelverk margra af stóru tónskáldunum eins og Bach, Duruflé, Franck, Mendelssohn og öll stóru verk Duprés og Messiaens. Leikur hans hefur verið hljóðritaður og gefinn út. Mikilvægustu diskarnir eru hljóðritaðir við stærsta orgel Sviss í Engelberg, við hið fræga Cavaille-Coll orgel í Azcoitia á Spáni og við hið þekkta “Hill-Organ” í ráðhúsinu í Sydney í Ástralíu.

Upplýingar um Alþjóðlega Orgelsumarið í Hallgrímskirkju HÉR.

Hádegistónleikar – 30 mín: 2.000 ISK / Sunnudags tónleikar – 60 mín: 2500 ISK