Öskukross á enni á öskudegi

02. mars 2022
Fréttir
Sr. Eiríkur Jóhannson í Hallgrímskirkju. Mynd sáþ

Fjöldi fólks fékk kross á enni í Hallgrímskirkju í dag. Þrjátíu og tvö voru í morgunmessu í kór kirkjunnar. Þar var ekki aðeins gengið til altaris heldur voru öll signd með öskukrossi. Eftir messu stóðu svo prestar kirkjunnar og kirkjuverðir við kórtröppur og tóku á móti ferðafólki sem kom í kirkjuna. Mörg þeirra þekktu táknmál öskudags, að öskukrossinn er ekki aðeins tákn iðrunar heldur minnir á fagnaðarerindið um Jesú Krist. Djúp kyrrð myndaðist í kirkjunni. Þegar fólk hafði gengið fram og notið helgiþjónustunnar settist fólk gjarnan, bað og íhugaði. Tár sáust á hvörmum nokkurra. Mörg stoppuðu við ljósberann, kveiktu bænaljós og skrifuðu bænir og skildu eftir. Önnur tendruðu friðarkerti. Fermingarungmennin fóru svo líka frá kirkjunni með öskukross á enni. Hvort sem fólk er íslenskt eða kemur að utan er það pílagrímar á lífsferð. Þau sækja í helgidóminn – og í dag fóru mörg þeirra frá kirkju með kross á enni. Öskukrossar við upphaf föstu er ekki nýlunda í Hallgrímskirkju en í fyrsta sinn í dag gafst ferðamönnum og fermingarhópnum tækifæri til að ganga fram og þiggja þennan signingarkross og blessun. „Þetta er orðin hefð!“ sagði einn kirkjuvörðurinn sem tók þátt í þjónustunni.