Passíusálmalestur í Dymbilviku

28. mars 2018


Á þessu ári eru 150 ár liðin síðan  Sr. Friðrik Friðriksson  fæddist og verður þess minnst með ýmsu móti. Í Dymbilviku verða passíusálmarnir lesnir af fulltrúum þeirra félaga sem hann stofnaði eða átti þátt í að stofna.

Lesararnir eru fulltrúar KFUM & K, Knattspyrnufélagins Vals, Skátahreyfingarinnar, Karlakórsins Fóstbræðra og úr hópi sérþjónustu kirkjunnar.

Tónlistarflutningur er í höndum Björns Steinars Sólbergssonar, Laufeyjar Geirlaugsdóttur, Magneu Tómasdóttur, Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur Fjölnis Ólafssonar & Guðmundar Vignis Karlssonar.