Árdegismessan fellur niður og leggur í ferðalag til Hafnafjarðarkirkju

12. nóvember 2019


Á morgun, miðvikudaginn 13. nóvember mun árdegismessan falla niður í Hallgrímskirkju en miðvikudagsöfnuðurinn mun bregða sér aðeins af bæ og kíkja í Hafnarfjarðarkirkju til að eiga sameiginlega messu með vina söfnuði sínum þar. Messan hefst kl. 8:15. Allir velkomnir þangað en nánari upplýsingar veitir Sigrún Ásgeirsdóttir s: 695-1910. Hafnarfjarðarhópurinn heimsækir okkur svo miðvikudaginn 4. des. Nánar auglýst síðar.

Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.