Örþing um Salómon konung

12. ágúst 2015
Hver var hann? Hvernig voru fjölskylda og uppeldisaðstæður þessa fræga konungs í Ísrael? Hvaða áhrif hafði hann á samfélag og helgihald þjóðar sinnar? Hver er áhrifasaga hans? Hvers eðlis var ljóðlist og spekihefð hebrea? Föstudaginn 14. ágúst kl. 12:15 - 13:45 verður örþing í Norðursal Hallgrímskirkju í tilefni af flutningi oratóriu Händels á kirkjulistahátíð. Örþingið er haldið á 200 ára afmæli Biblíufélagsins og í samvinnu við félagið. Fyrirlesarar eru:

Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor: Heilagur bústaður Hins Hæsta. Musteri Salómons í Saltara.

Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur á Selfossi: Batseba, móðir Salómons í sögu og samtíð.

Sr. Hjörtur Pálsson, bókmenntafræðingur. „Eins og hindin þráir vantslindir…“ Við lindir ljóðs og trúar í boði Salómons.

Stjórnendur eru prestar Hallgrímskirkju: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.