Örkin og unglingar

07. janúar 2021
Sóttvarnarreglur hafa breyst varðandi börn og ungmenni og er nú aftur leyfilegt að vera með æskulýðsstarf.

Örkin og unglingar byrja aftur á mán. 11. jan. kl. 20-21:30 og verður starfið í kórkjallara kirkjunnar. Starfið er fyrir öll ungmenni í 8.-10. bekk og er endurgjaldslaust.

Fermingarfræðslan hefst sömuleiðis aftur með eðlilegum hætti og verður á miðvikudögum í kórkjallara kirkjunnar. Það er að sjálfsögðu enn hægt að skrá barn í fermingarfræðslu.

Það er mjög ánægjulegt og gleðilegt að geta boðið unglingunum að koma aftur í kirkjustarf í kirkjuna.