Sá sem trúir og skírist ...

10. júlí 2021
Sunnudagsmessan kl. 11. Á glæsilegum skírnarfonti Hallgrímskirkju, sem er verk Leifs Breiðfjörð, standa orð um trú og skírn. Orðin eru úr Markúsarguðspjalli og eru guðspjallstexti 11. júlí. Í prédikun í messunni í Hallgrímskirkju verður því rætt um trú og skírn. Prestur: Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. Söngvarar: Marteinn Snævarr Sigurðsson, Philip Barkhudarov, Rósalind Gísladóttir og Salný Vala Óskarsdóttir. Messukaffi eftir helgihaldið verður í Suðursalnum. Allir velkomnir.

2021 11. júlí 6 sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Forspil
Auf meinen lieben Gott BuxWV 179 Dietrich Buxtehude
1 Sé Drottni lof og dýrð

540 Ljós ert þú lýði

367 Eigi stjörnum ofar

Kórsöngur
Til mín skal börnin bera Lyon 1557 / Erfurt 1563 / Becker – Helgi Hálfdánarson

47 Gegnum Jesú helgast hjarta

Undir útdeiligu
Jesús Kristur, lífsins ljómi Raddsetning: Johann Sebastian Bach / Martin Luther – Sigurbjörn Einarsson

712 Dag í senn eitt andartak í einu

Eftirspil
Chaconne Páll Ísólfsson

Lestraröð

Lexía: 5Mós 7.6-9
Þú ert heilög þjóð fyrir Drottni Guði þínum. Drottinn valdi þig til að verða eignarlýður hans meðal allra þjóða sem búa á yfirborði jarðar. Ekki var það vegna þess að þið væruð fjölmennari en allar aðrar þjóðir að Drottinn fékk ást á ykkur og valdi ykkur því að þið eruð fámennari en allar aðrar þjóðir. En sökum þess að Drottinn elskaði ykkur og hélt eiðinn sem hann sór feðrum ykkar leiddi hann ykkur út úr þrælahúsinu með sterkri hendi og keypti ykkur frjálsa úr hendi faraós Egyptalandskonungs. Vita skaltu: Drottinn, Guð þinn, hann einn er Guð, hinn trúfasti Guð sem heldur sáttmálann og veitir þeim heill í þúsund ættliði sem elska hann og halda boðorð hans.

Pistill: Post 8.26-39
En engill Drottins mælti til Filippusar: „Statt upp og gakk suður á veginn sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa.“ Þar er óbyggð. Hann hlýddi og fór. Þá bar að mann frá Eþíópíu. Hann var háttsettur hirðmaður hjá drottningu Eþíópa, sem kallast Kandake, og settur yfir alla fjárhirslu hennar. Hann hafði farið til Jerúsalem til að biðjast fyrir og var á heimleið, sat í vagni sínum og las Jesaja spámann. Andinn sagði þá við Filippus: „Gakk að þessum vagni og vertu sem næst honum.“ Filippus skundaði þangað og heyrði manninn vera að lesa Jesaja spámann. Hann spurði: „Hvort skilur þú það sem þú ert að lesa?“ Hinn svaraði: „Hvernig ætti ég að geta það ef enginn leiðbeinir mér?“ Og hann bað Filippus stíga upp í og setjast hjá sér. En orð þeirrar ritningar, sem hann var að lesa, voru þessi: Eins og sauður sem leiddur er til slátrunar, eða eins og lamb sem þegir fyrir þeim er rýja það, svo lauk hann ekki upp munni sínum. Hann var niðurlægður en Guð nam brott sektardóm hans. Hver getur sagt frá ætt hans því að líf hans var hrifið burt af jörðinni? Hirðmaðurinn mælti þá við Filippus: „Seg þú mér: Um hvern segir spámaðurinn þetta, sjálfan sig eða einhvern annan?“ Filippus tók þá til orða, hóf máls á ritningu þessari og boðaði honum fagnaðarerindið um Jesú. Þegar þeir fóru áfram veginn komu þeir að vatni nokkru. Þá mælti hirðmaðurinn: „Hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast?“ Filippus sagði: „Ef þú trúir af öllu hjarta er það heimilt.“ Hirðmaðurinn svaraði honum: „Ég trúi að Jesús Kristur sé sonur Guðs.“Hann lét stöðva vagninn og stigu báðir niður í vatnið, Filippus og hirðmaðurinn, og Filippus skírði hann. En er þeir stigu upp úr vatninu hreif andi Drottins Filippus burt. Hirðmaðurinn sá hann ekki framar og fór fagnandi leiðar sinnar.

Guðspjall: Mrk 16.15-16
Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða.