Safnaðarblað Hallgrímskirkju komið út

05. nóvember 2018


Hallgrímskirkja iðar af lífi frá morgni til kvölds alla daga ársins. Dagskrá helgihalds, listastarfs og félagsstarfs er mikið auk þess sem ferðamönnum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum.

Hallgrímskirkja hefur nú gefið út fréttabréf sem er ætlað að fanga eitthvað af því lífi og starfi sem fram fer í kirkjunni og á vegum kirkjunnar.

Fréttabréfinu var dreift inn á heimili í Hallgrímssókn í morgun en einnig er hægt að fletta því hér fyrir neðan.

https://issuu.com/grafisksmidja/docs/hallgr_mskirkja_net?fbclid=IwAR1zNT4vn9SBMv4HTuQNoy4opfG2mBhgZUqG1uOTUB0rVZgd0qKrMe4CiR4