Sálmafoss & Barnafoss á Menningarnótt í Hallgrímskirkju 2023

16. ágúst 2023
Fréttir

SÁLMAFOSS Á MENNINGARNÓTT
Laugardagur 19. ágúst kl. 14-18

Á Sálmafossi í Hallgrímskirkju á Menningarnótt verður opin kirkja og sálminum fagnað í sinni fjölbreyttustu mynd af öllum kynslóðum.
„Fossinn“ flæðir í fjóra tíma milli kl. 14-18 og er áheyrendum velkomið að koma og fara að vild.
Kirkjan fagnar útgáfu nýrrar sálmabókar með Sálmafossi í Hallgrímskirkju en á heila tímanum sameinast gestir og kórar í almennum söng með Klais-orgeli Hallgrímskirkju.
Sálmafoss var fyrst haldinn í Hallgrímskirkju árið 2007 að frumkvæði Harðar Áskelssonar fyrrum söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og kantors Hallgrímskirkju.
Á dagskránni er: Almennur söngur, kórsöngur, orgelleikur, sálmaspuni, sálmforleikir, Bach-kóralar, nýsköpun, barnakórar, ungmennakór og kirkjukórar.

Fram koma: Barnakór Hafnarfjarðarkirkju, Björn Steinar Sólbergsson, Brynhildur Auðbjargardóttir, Friðrik Vignir Stefánsson, Guðný Einarsdóttir, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Inger-Lise Ulsrud, Kammerkór Seltjarnaneskirkju, Kammerkórinn Huldur, Kór Hallgrímskirkju, Kór Neskirkju, Kór Öldutúnsskóla, Perlukór Háteigskirkju, Steinar Logi Helgason og Steingrímur Þórhallsson.
Gestgjafi er Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, sóknarprestur í Hallgrímskirkju.

BARNAFOSS Á MENNINGARNÓTT Í HALLGRÍMSKIRKJU
Dagskrá fyrir börnin verður inni í kirkjunni laugardag 19. ágúst milli 14-16
Á Menningarnótt geta börn og fjölskyldur komið í Hallgrímskirkju og tekið þátt í því að búa til Barnafoss. Börnin velja sér einn efnisstrimil sem þau festa á hangandi band sem mynda svo foss. Börnin geta leikið sér að hlaupa í gegnum fossinn. Einnig verður boðið upp á Hallgrímskirkju - kórónugerð fyrir börnin. Þau fá tilbúna kórónu sem þau geta litað.
Umsjón með barnastarfi: Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir

Sunnudaginn 20. ágúst kl 17. lýkur Orgelsumri í Hallgrímskirkju með tónleikum spunasnillingsins Inger-Lise Ulsrud, organista í Uranienborg kirke í Osló, Noregi.

Mynd af fullri kirkju á Orgelmaraþoni á Menningarnótt 2022 / Hrefna Harðardóttir