Samtal í guðsþjónustu sunnudagsins

06. ágúst 2021
Sunnudaginn 8. ágúst er guðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Grétar Einarsson ræða saman út frá guðspjalli dagsins í prédikun.
Organisti er Kjartan Jósefsson Ognibene.  Forsöngvarar eru Marteinn Snævarr Sigurðsson, Rósalind Gísladóttir, Ragnar Pétur Jóhannsson og Sara Grímsdóttir.

Í samtalsprédikun verður Guð og fólkið hans, regnboginn og litskrúð mannslífsins í forgrunni.
Guðspjall:   Jóh 4.19-26
Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá staður þar sem tilbiðja skuli.“
Jesús segir við hana: „Trú þú mér, kona. Sú stund kemur að þið munuð hvorki tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem. Þið tilbiðjið það sem þið þekkið ekki. Við tilbiðjum það sem við þekkjum því hjálpræðið kemur frá Gyðingum. En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra tilbiðjenda. Guð er andi og þeir sem tilbiðja hann eiga að tilbiðja í anda og sannleika.“ Konan segir við hann: „Ég veit að Messías kemur – það er Kristur. Þegar hann kemur mun hann kunngjöra okkur allt.“ Jesús segir við hana: „Ég er hann, ég sem við þig tala.“

Sálmarnir sem við syngjum eru :
359 Ó ást sem faðmar allt í þér
18   Í gegnum lífsins æðar allar
909 Er vaknar ást á vori lífs
893 Megi gæfan þig geyma