SETNING VETRARHÁTÍÐAR & Norðurljósahlaup Orkusölunnar

08. febrúar 2019

Vetrarhátíð var sett við Hallgrímskirkju í
gærkvöldi 7.febrúar með sýningu á verkinu Passage eftir listamannahópinn
Nocturnal frá Nýja Sjálandi og er unnið í samvinnu við List í ljósi. Verkinu
var varpað á Hallgrímskirkjuturn. Unnið var með íslenska arfleið og átti verkið
að vekja turninn til lífsins með mynd og hljóði. Verkið verður til sýnis öll
kvöld á hátíðinni frá kl 19-23.









Norðurljósahlaup Orkusölunnar verður  laugardaginn 9. febrúar og liggur leiðin
meðal annars í gegnum Hallgrímskirkju.