Sigríður Hjálmarsdóttir um Biblíuna

06. nóvember 2018
Hvaða minningar á Sigríður Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri, um Biblíuna? Hvernig metur hún gildi hennar? Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað gegnir hlutverki að í menningu samtíðar? Í haust mun hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulegar minningar og ræða um nútímagildi biblíuboðskapar. Sigríður, sem er framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju, er sjötta í röð átta frummælenda í Biblían - menning og minning. Miðvikudagur 7. nóvember kl. 12 í norðursal Hallgrímskirkju. Allir velkomnir.